Húsið okkar er við Ashfield Close sem er lítill botnlangi rétt við æfingasvæði Crystal Palace. Það er á tveimur hæðum, ég veit ekki hversu stórt það er í fermetrum. Á efri hæðinni eru fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi, annað inn af hjónaherberginu. Atli og Unnur hafa sér herbergi en Borgar og Vignir eru saman í herbergi. Atla herbergi verður gestaherbergi þegar við fáum gesti. Á neðri hæðinni er eldhús með borðkrók, stór stofa, gestasnyrting og bílskúr. Úr stofunni er gengið í garð sem snýr í norð-austur. Það er heilmikið dýralíf hérna úti, við heyrum mikið í fuglum og stöku sinnum koma íkornar inn í garðinn. Það er um 7 mínútna gangur á Beckenham Junction lestarstöðina og þaðan náum við lest til London Victoria á um 12 mínútum, við erum sennilega fljótari niður í miðbæ London en margir sem búa í London! Við botnlangann okkar stoppar svo strætó sem gengur inn í Bromley, en þar er stór miðbæjarkjarni.
Myndir
Saturday, 11 August 2007
7 Ashfield Close
at
18:41
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Hæ, loksins held ég að þetta takist hjá mér.
Mublurnar sem þið eruð búin að fá ykkur eru reglulega fallegar.
Mér finnst þið vera búin að vera dugleg að koma ykkur fyrir.
Eldhúsið er stórt og örugglega gott að vinna í því.
Garðurinn er alveg ljómandi að sjá og ekki vera að geta fylgst með héra.
Gangi ykkur vel.
Kveðja stina
Húsið er frábært!
Gaman að fá íkorna í heimsókn, kannski þið getið smyglað nokkrum heim næsta haust :)
Flott hús sem þið fenguð og ég sé að orðabækurnar eru líka komnar upp í hillu!
Gangi ykkur öllum vel í nýjum heimkynnum,
Bryndís :)
Post a Comment