Við elduðum okkur enska bógsteik (boned shoulder) í kvöld. Þrátt fyrir að hafa ítrekað verið vöruð við útlensku lambakjöti, það væri alveg óætt, ákváðum við að vera hugrökk og prófa enska lambakjötið. Útkoman var svona líka góð! Ekkert athugavert við enskt lambakjöt, það er bara alveg ljómandi gott. Við eigum alveg örugglega eftir að elda það oft meðan við erum hér.
Sunday, 12 August 2007
Enskt lambakjöt
at
22:04
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Hæ!
Mikið var kjötið girnilegt á myndinni.
Ég hef aldrei eldað lambakjöt, þegar ég hef verið erlendis, því það fussa allir Íslendingar og sveija, og segja að það sé óætt.
Kveðja til ykkar allra.
Mamma, tengdó og amma
stina
Post a Comment