Friday, 10 August 2007

Komin í samband við umheiminn

Það gengur allt vel hjá okkur, við erum búin að vera á fullu að koma okkur fyrir og kynnast nýju umhverfi. Við byrjuðum á að fara í IKEA og kaupa búslóð fyrir 6 manna fjölskyldu, það hefði verið mun þægilegra ef hún fengist sem pakki, þá hefðum við hugsanlega ekki þurft að eyða 6 klukkutímum í IKEA fyrsta daginn okkar hér! Nú og svo eru ótal hutir sem þarf að eignast - sjónvarp, ryksuga, þvottasnúra, waterfilter ... dósaopnari er ein af nauðsynjununum sem ég uppgötvaði að okkur vantar ennþá.
Við fengum nettengingu og síma í dag, svo að þetta er allt að koma. Við erum öll komin með ný GSM númer svo að ef þið viljið hafa samband við okkur þá virka gömlu númerin ekki lengur.

1 comment:

Vala said...

Frábært - var búin að átta mig á þessu með símana þar sem það eina sem ég hef heyrt frá ykkur eru mörg sms með mismunandi símanúmerupplýsingum!!!
Húsið lítur svakalega vel út :-)
kv. Vala