Monday, 13 August 2007

London Zoo

Við fórum í dýragarðinn í Regents Park í dag. Ég held að það sé sama hversu gamall maður verður, það er alltaf jafn skemmtilegt að fara í dýragarð! Við skoðuðum öll möguleg og ómöguleg dýr allt frá ljónum til sæhesta en það sem stendur uppúr er heimsóknin í skordýrahúsið, ég fæ ennþá hroll við tilhugsunina um pöddurnar þar! Batteríið í myndavélinni okkar gaf sig því miður svo að það er ekki mikið af myndum úr dýragarðinum, en við erum búin að kaupa nýtt batterí.
Eftir dýragarðsheimsóknina fórum við inn í Camden í Offspring skóbúðina þar sem Unnur keypti sér flottustu skó sem hún hefur nokkurn tíma séð!
Myndir

2 comments:

Anonymous said...

Alveg sammála, það er alltaf gaman að fara í dýragarð, við Jonni fórum einmitt í dýragarðinn í Kaupmannahöfn um daginn og skemmtum okkur mjög vel en vorum trúlega eina barnlausa fólkið á staðnum :).
Ég vil leggja inn beiðni um að þið setjið líka inn myndir af ykkur Þóri. Maður fer að gleyma hvernig þið lítið út.

"Gegt" flottir skórnir hennar Unnar ;).

Anonymous said...

Flottir skórnir hennar Unnar!

Ég hef aldrei komið í alvöru stóran dýragarð :(

Gaman að sjá hvað þið eruð dugleg að skoða ykkur um.:)