Atli og Unnur fóru í viðtal í Ravensbourne skólanum í morgun. Viðtalið gekk mjög vel, þau stóðu sig eins og hetjur og komust inn í skólann (það var svosem alveg fyrirsjáanlegt). Skólinn byrjar 5. september og ég held að þau hafi ekki hlakkað svona mikið til að byrja í skólanum síðan þau voru 6 ára. Þau verða saman í einu fagi, en fögin sem þau völdu sér eru:
Atli
Efnafræði
Líffræði
Sálfræði
Stærðfræði
Unnur
Fjölmiðlafræði
Lögfræði
Sálfræði
Viðskiptafræði
Borgar er á biðlista eftir að komast inn í þennan skóla, hans líkur jukust verulega við það að systkini hans komust inn. Hann á öruggt pláss í Kelsey Park skólanum og fer í viðtal þar á afmælisdaginn sinn 6. september.
Vignir fer í Worsley Bridge Junior School sem er í næstu götu við húsið okkar.
Borgar og Vignir þurfa báðir að vera í skólabúningum og þó að það séu ekki lengur skólabúningar í 6th form sem Atli og Unnur fara í þá er samt "dresskode" þannig að þau þurfa að vera klædd á ákveðinn hátt.
Friday, 24 August 2007
Skólinn fer að byrja
at
12:31
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Til hamingju með elstu börnin, ég vona að Borgar komist í sama skóla.
Auðvitað komust þau inn:) Ég hefði aldrei verið í neinum vafa með það, til hamingju með þau, segi eins og Helena vona að Borgar komist líka í þann skóla:)
Post a Comment