Það væri synd að segja að veðrið væri skemmtilegt, rigning, rok og kuldi. Þetta er eins og íslenskt sumarveður og búið að vera í nokkra daga. Fólkið hér er mjög upptekið af veðrinu, á öllum strætóstoppistöðvum er spjallað um veðrið og sessunautar manns í strætó koma allir með komment um veðrið. Samkvæmt veðurspánni á þetta að lagast á morgun og ætti jafnvel að verða fínt veður um helgina - ég vona það allavega. Við erum frekar löt í þessu slagveðri, erum bara heima við að dunda okkur, lesa og í tölvunni. Við bökuðum pönnukökur áðan, það kom í ljós að desilítramál er ekki til á heimilinu svo að við notuðum sjússamæli til að mæla hveiti og mjólk. Þær urðu samt alveg jafn góðar og venjulega, við borðuðum þær með clotted cream og jarðarberjum (sem við tíndum ekki sjálf), mmmmmmm
Wednesday, 22 August 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Mmmmmmm pönnukökur með clotted cream, ég skal trúa því að það sé gott, pant fá svoleiðis þegar ég kem í heimsókn.
.... eða jafnvel fyrr, kannski þið getið komið með clotted cream handa mér ef þið komið eitthvað til landsins í haust :)
Post a Comment