Þegar við vorum hér í Englandi fyrr í sumar sá ég fyrir algjöra tilviljun þegar ég sat í strætó, jarðarberjaakur þar sem hægt er að koma og tína jarðarber gegn gjaldi. Þessi akur er rétt hjá Beckenham, bænum sem við búum í. Ég ákvað þá að þangað skyldum við fara og tína okkur jarðarber þegar við værum flutt hingað. Ekki veit ég hvernig mér datt í hug að ég ætti eftir að muna hvaða strætó á að taka til að komast á akurinn, en því miður skrifaði ég ekkert hjá mér um það og því vitum við ekki alveg hvernig á að komast þangað. Það eru fjórar strætóleiðir sem koma til greina og í dag byrjuðum við að kanna hver þeirra er sú rétta. Við náðum að útiloka eina strætóleið svo að vonandi finnum við staðinn í vikunni og getum farið og tínt okkur jarðarber.
Wednesday, 15 August 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Rosalega var gaman að sá hvernig þið búið þarna í útlandinu. Vonandi skemmtuð þið ykkur vel á hverfispöbbanum Ye George Inn
Bestu kveðjur Anna Björg
Post a Comment