Það var margt sem gerðist í dag
- Borgar byrjaði í nýjum skóla
- ég byrjaði í mínum skóla
- við keyptum okkur bíl
Borgari líst bara vel á nýja skólann - allavega ennþá eftir fyrsta daginn. Nú getur hann farið samferða Atla og Unni bæði í skólann og heim fyrst þau eru öll komin í sama skólann.
Mér líst líka vel á skólann minn. Það er ekki byrjuð hefðbundin kennsla ennþá, fyrsta vikan kallast "induction week" og er notuð í skráningu, kynningar og undirbúningskennslu. Í dag var skráning, fundur með deildarstjóranum, sem heitir Andy Dawson, og kynnisferð um skólann sem er mjög stór! Við erum um 15 sem erum skráð í Information Science, en í Bókasafns og upplýsingafræðideildinni eru um 180 nemendur. Á morgun verða svo áfram kynningar, við skoðum bókasafnið og tölvuþjónustuna og fundum svo meira með deildarstjóranum. Það er mjög gaman að vera loksins byrjuð í skólanum og ég hlakka heilmikið til vetrarins.
Við erum búin að kaupa okkur bíl. Við fundum Chrysler Grand Voyager 1997 sem við ákváðum að kaupa. Hann er með 6 hægindastólum og allur leðurklæddur að innan, algjör lúxusbíll. Það er verið að yfirfara hann núna og við fáum hann afhentan á fimmtudaginn, það verður gaman að hafa bíl og geta skoðað okkur um í Englandi. Til að setja punktinn yfir i-ið fórum við svo og keyptum okkur fish and chips í kvöldmat.
Myndir
Monday, 24 September 2007
Viðburðaríkur dagur
at
20:19
4
comments
Thursday, 20 September 2007
Hádegisverður í Langley Park
Um daginn þegar við vorum að versla í Waitrose kom til okkar kona og spurði okkur (á ensku) hvort við værum að tala íslensku. Þessi kona heitir Dorothy og var gift íslenskum manni í 60 ár. Þau bjuggu hér í Beckenham nánast allan sinn hjúskap, hún býr hér enn en hann dó fyrir nokkrum árum. Við spjölluðum aðeins saman í búðinni og hún fékk hjá mér símanúmerið mitt. Í dag bauð hún mér svo í hádegisverð í golfklúbbnum sínum sem heitir Langley Park Golf Club og er hér í Beckenham. Það var mjög gaman að koma í klúbbinn, ég hef aldrei áður komið á golfvöll og svo var mjög gaman að spjalla við Dorothy enda ætlum við að halda sambandi.
at
15:00
1 comments
Wednesday, 19 September 2007
Nýr skóli
Við fórum í Ravensbourne skólann í dag og ræddum við deildarstjóra 9. árs nema. Eftir að hfa skoðað málið rækilega ákváðum við að færa Borgar yfir í Ravensbourne svo að hann byrjar í nýjum skóla á mánudaginn. Skólabúningurinn í Ravensbourne er gjörólíkur þeim sem er í Kelsey Park svo að hann getur ekki notað neina af flíkunum sem við erum búin að kaupa á hann!
Þegar við komum í skólann í dag byrjuðum við á að fara á skrifstofuna og gera grein fyrir okkur og að við værum komin vegna Borgar Thorisson. Móttökuritarinn hringdi í Mrs. Price (sem er deildarstjórinn) og tilkynnti henni að Mr. and Mrs. Thorisson væru komin til að hitta hana. Við áttum dálítið bágt með að flissa ekki að þessu, fannst svolítið skondið að vera kölluð þetta :-)
at
21:09
2
comments
Tuesday, 18 September 2007
Sá á kvölina sem á völina
Við fengum skilaboð í dag frá Ravensbourne skólanum, sem Atli og Unnur eru í, að það hefði losnað pláss fyrir Borgar þar. Þar sem þeir eru með langan biðlista þurfum við að ákveða okkur á morgun hvort við tökum plássið eða ekki. Við Þórir ætlum að fara þangað á morgun og fá hjá þeim ráðleggingar, vonandi getum við ákveðið okkur eftir það. Borgar er alveg jafn ringlaður og við, er ekki viss hvort hann vill vera áfram í Kelsey Park eða fara í Ravensbourne, en þetta kemur í ljós á morgun!
at
20:46
1 comments
Saturday, 15 September 2007
Afmæli
Mamma hans Þóris er í heimsókn hjá okkur núna og verður fram á sunnudag. Í gær átti hún stórafmæli, varð 60 ára. Í tilefni dagsins fórum við út að borða á indverskan stað hér í Beckenham sem heitir The Curry Cottage. Þetta er pínulítill staður sem var fullur allt kvöldið og maturinn var alveg frábær! Meira að segja Vignir kláraði allan matinn sinn og það gerist nú ekki á hverju kvöldi. Krakkarnir tilkynntu okkur að naan brauðið þeirra væri það besta sem þau hefðu smakkað, enda var mikið borðað af því. Eftir matinn fórum við niður á High street og tókum þaðan strætó heim. Það var greinilega föstudagskvöld því það var mikið um að vera í bænum, allir barir fullir af fólki og allt iðaði af mannlífi.
Myndir
at
08:37
0
comments
Friday, 14 September 2007
Lífið að komast í fastar skorður
Nú eru allir krakkarnir byrjaðir í skólanum og Þórir byrjaður að vinna svo að lífið hjá okkur er óðum að komast í fastar skorður. Minn skóli byrjar 24. september og mér sýnist að ég þurfi að mæta í skólann á hverjum degi fram að jólum. Skólinn hjá krökkunum er frá 8.30 til ca. 15 hjá þeim eldri og 8.50 til 15.30 hjá Vigni. Eldri krakkarnir taka strætó í og úr skóla og við þurfum að fylgja Vigni og sækja hann í skólann.
Það er búið að vera sannkallað sumarveður hér síðustu daga, yfir 20 stiga hiti og sól og ég hef getað flatmagað úti í garði í sólbaði! Maður finnur samt að það er aðeins byrjað að hausta, laufin eru farin að falla af tjánum, það liggja hnetur um allt á jörðinni og það er svalt úti á morgnana þegar ég fer með Vigni í skólann, en það er fljótt að hlýna þegar sólin byrjar að skína.
Við náðum loksins að selja bílinn okkar, hann seldist í gær, svo að nú getum við farið að huga að því að kaupa okkur bíl hérna. Þó að við munum áfram nota almenningssamgöngurnar dags daglega þá verður fínt að hafa bíl - okkur langar til að skoða okkur um í Englandi, keyra eitthað um. Ég veit ekki hvernig bíl við fáum okkur, það er mikill þrýstingur frá börnunum að kaupa einhvern flottari bíl en Fiat Multipla þó að ég viti ekki alveg hvernig það á að vera hægt, ég held að þetta séu flottustu bílar í heimi!
Myndir
at
09:49
1 comments
Thursday, 6 September 2007
Afmælisdagur Borgars
Í dag er 14 ára afmælið hans Borgars og eins og venjulega þegar hann á afmæli eru veðurguðirnir í sérlega góðu skapi, glampandi sól og blíða í allan dag, hitinn fór í 25 gráður. Í tilefni dagsins fékk afmælisbarnið að velja morgunmat, hann vildi fá amerískan morgunmat, beikon egg og pönnukökur með sírópi. Ég svindlaði reyndar aðeins og keypti pönnukökurnar tilbúnar. Eftir morgunmat fóru Atli, Unnur og Vignir í skólann. Þetta var fyrsti skóladagurinn hjá Atla og Unni svo að þau voru að vonum spennt, nýr skóli og í fyrsta sinn sem þau þurfa að mæta klædd eftir ákveðnum reglum.
Borgar fór í viðtal í Kelsey Park skólanum í morgun og brilleraði alveg í því. Það var skólastjórinn sem tók viðtalið við hann og hann átti ekki til orð yfir það hvað Borgar talar góða ensku. Hann fer í "top" bekki í öllum fögunum sem hann verður í. Skyldufögin eru enska, stærðfræði, raungreinar og íþróttir og svo valdi hann sér að auki viðskiptafræði, frönsku, landafræði og meiri íþróttir. Fyrsti skóladagurinn hans verður á mánudaginn og við fórum inn í Bromley eftir viðtalið til að kaupa á hann skólabúning.
Í kvöld fórum við svo út að borða á Pierluigi's sem er frábær ítalskur staður hér í Beckenham. Þeir bjóða upp pastarétti úr heimatilbúnu pasta og þegar þeir fréttu að Borgar ætti afmæli komu allir þjónarnir og röðuðu sér upp við borðið okkar og sungu afmælissönginn. Unglingarnir fóru nú pínulítið hjá sér en Vignir tilkynnti okkur að hann vildi fara á þennan stað þegar hann á afmæli.
Myndir
at
22:00
2
comments
Tuesday, 4 September 2007
Fyrsti skóladagurinn

Fyrsti skóladagurinn hjá Vigni var í dag. Skólinn hans heitir Worsley Bridge Junior School og er í næstu götu við húsið okkar. Við fórum með hann í heimsókn í skólann í gær, hittum kennarann hans og skoðuðum stofuna hans. Hann þarf að vera í skólabúningi sem við fórum í gær og keyptum.
Í morgun kl. 8.50 hófst svo fyrsti skóladagurinn. Við vorum mætt, ásamt öllum hinum, um kl. 8.45 fyrir utan skólann og það er spurning hvert okkar var kvíðnast, foreldrarnir eða skóladrengurinn! Það er náttúrulega heilmikið mál að vera 8 ára og fara í skóla í ókunnugu landi þar sem maður þekkir engan og skilur varla orð í tungumálinu sem er talað! Kennarinn hans skipaði honum "guardian" sem heitir Ethan og er með honum í bekk og sá strákur átti að sjá um að passa upp á hann. Skólinn var svo búinn kl. 15.30 og þá fór Þórir og sótti hann. Þessi fyrsti skóladagur gekk bara vel. Vigni fannst alveg ágætlega gaman í skólanum og segist hafa eignast fimm vini sem hann man nú reyndar ekki hvað heita, en hann langar alveg til að fara í skólann aftur á morgun.
at
22:49
5
comments