Í dag er 14 ára afmælið hans Borgars og eins og venjulega þegar hann á afmæli eru veðurguðirnir í sérlega góðu skapi, glampandi sól og blíða í allan dag, hitinn fór í 25 gráður. Í tilefni dagsins fékk afmælisbarnið að velja morgunmat, hann vildi fá amerískan morgunmat, beikon egg og pönnukökur með sírópi. Ég svindlaði reyndar aðeins og keypti pönnukökurnar tilbúnar. Eftir morgunmat fóru Atli, Unnur og Vignir í skólann. Þetta var fyrsti skóladagurinn hjá Atla og Unni svo að þau voru að vonum spennt, nýr skóli og í fyrsta sinn sem þau þurfa að mæta klædd eftir ákveðnum reglum.
Borgar fór í viðtal í Kelsey Park skólanum í morgun og brilleraði alveg í því. Það var skólastjórinn sem tók viðtalið við hann og hann átti ekki til orð yfir það hvað Borgar talar góða ensku. Hann fer í "top" bekki í öllum fögunum sem hann verður í. Skyldufögin eru enska, stærðfræði, raungreinar og íþróttir og svo valdi hann sér að auki viðskiptafræði, frönsku, landafræði og meiri íþróttir. Fyrsti skóladagurinn hans verður á mánudaginn og við fórum inn í Bromley eftir viðtalið til að kaupa á hann skólabúning.
Í kvöld fórum við svo út að borða á Pierluigi's sem er frábær ítalskur staður hér í Beckenham. Þeir bjóða upp pastarétti úr heimatilbúnu pasta og þegar þeir fréttu að Borgar ætti afmæli komu allir þjónarnir og röðuðu sér upp við borðið okkar og sungu afmælissönginn. Unglingarnir fóru nú pínulítið hjá sér en Vignir tilkynnti okkur að hann vildi fara á þennan stað þegar hann á afmæli.
Myndir
Thursday, 6 September 2007
Afmælisdagur Borgars
at
22:00
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Ég setti afmæliskveðju við síðasta blogg en hún á auðvitað frekar heima hér.
Til hamingju með daginn Borgar og til hamingju með þetta góða viðtal og inngönguna í skólann. Gangi þér vel í vetur.
Mér finnst þessir skólabúningar allir BARA flottir, ég hlakka til að sjá mynd af Borgari í sínum. Reyndar er dálítið eins og Atli sé að fara að skutla dóttur sinni í skólann og fara svo sjálfur á skrifstofuna að vinna LOL.
Góða helgi :)
Það er frábært, að hann Borgar minn hafi staðið sig svona vel í viðtalinu:)
Flott hjá þér Borgar minn:)
Nú styttist í að ég komi til ykkar hlakka mikið til:)
Post a Comment