
Fyrsti skóladagurinn hjá Vigni var í dag. Skólinn hans heitir Worsley Bridge Junior School og er í næstu götu við húsið okkar. Við fórum með hann í heimsókn í skólann í gær, hittum kennarann hans og skoðuðum stofuna hans. Hann þarf að vera í skólabúningi sem við fórum í gær og keyptum.
Í morgun kl. 8.50 hófst svo fyrsti skóladagurinn. Við vorum mætt, ásamt öllum hinum, um kl. 8.45 fyrir utan skólann og það er spurning hvert okkar var kvíðnast, foreldrarnir eða skóladrengurinn! Það er náttúrulega heilmikið mál að vera 8 ára og fara í skóla í ókunnugu landi þar sem maður þekkir engan og skilur varla orð í tungumálinu sem er talað! Kennarinn hans skipaði honum "guardian" sem heitir Ethan og er með honum í bekk og sá strákur átti að sjá um að passa upp á hann. Skólinn var svo búinn kl. 15.30 og þá fór Þórir og sótti hann. Þessi fyrsti skóladagur gekk bara vel. Vigni fannst alveg ágætlega gaman í skólanum og segist hafa eignast fimm vini sem hann man nú reyndar ekki hvað heita, en hann langar alveg til að fara í skólann aftur á morgun.
Tuesday, 4 September 2007
Fyrsti skóladagurinn
at
22:49
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Vá en hvað hann Vignir minn er duglegur:) Til hamingju elsku strákurinn minn:)
Þú ert svo fínn í skólafötunum.
Er farið að hlakka til að koma út til ykkar, það styttist óðum í það
Hann er greinilega langflottastur strákurinn þinn en fáum við ekki að sjá mynd af þér á fyrsta skóladeginum
kv. Sigrún H
Þetta eru ekkert smá æðislega flott föt, hann lítur bara út eins og alvöru business strákur.
Gott að fyrsti dagurinn gekk vel og að hann sé strax farinn að eignast vini ... hvað sem þeir heita, hver man þessi asnalegu útlensku nöfn hvort sem er!? ;)
Ótrúlega seigur!!!! Við Hildigunnur biðjum ógisslega vel að heilsa skóladrengnum!
Til hamingju með miðju barnið. Fjarvera hans hefur greinilega áhrif á veðrið hérna, það er amk grátt og blautt í dag.
Post a Comment