Thursday, 20 September 2007

Hádegisverður í Langley Park

Um daginn þegar við vorum að versla í Waitrose kom til okkar kona og spurði okkur (á ensku) hvort við værum að tala íslensku. Þessi kona heitir Dorothy og var gift íslenskum manni í 60 ár. Þau bjuggu hér í Beckenham nánast allan sinn hjúskap, hún býr hér enn en hann dó fyrir nokkrum árum. Við spjölluðum aðeins saman í búðinni og hún fékk hjá mér símanúmerið mitt. Í dag bauð hún mér svo í hádegisverð í golfklúbbnum sínum sem heitir Langley Park Golf Club og er hér í Beckenham. Það var mjög gaman að koma í klúbbinn, ég hef aldrei áður komið á golfvöll og svo var mjög gaman að spjalla við Dorothy enda ætlum við að halda sambandi.

1 comment:

stina said...

Hver veit nema þú fáir golfbakteríuna núna;)

Gaman fyrir þig að hitta íslenska konu, og geta hitt hana og rabbað við, alveg æðislegt