Við fórum í Ravensbourne skólann í dag og ræddum við deildarstjóra 9. árs nema. Eftir að hfa skoðað málið rækilega ákváðum við að færa Borgar yfir í Ravensbourne svo að hann byrjar í nýjum skóla á mánudaginn. Skólabúningurinn í Ravensbourne er gjörólíkur þeim sem er í Kelsey Park svo að hann getur ekki notað neina af flíkunum sem við erum búin að kaupa á hann!
Þegar við komum í skólann í dag byrjuðum við á að fara á skrifstofuna og gera grein fyrir okkur og að við værum komin vegna Borgar Thorisson. Móttökuritarinn hringdi í Mrs. Price (sem er deildarstjórinn) og tilkynnti henni að Mr. and Mrs. Thorisson væru komin til að hitta hana. Við áttum dálítið bágt með að flissa ekki að þessu, fannst svolítið skondið að vera kölluð þetta :-)
Wednesday, 19 September 2007
Nýr skóli
at
21:09
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Vonandi mun Borgari líka vel í nýja skólanum og ég óska honum til hamingju með að hafa komist að.
Bestu kveðjur til the Thorisson family :)
Það er ánægjulegt að Borgar skuli ætla að breyta um skóla. Aftur til hamingju elsku Borgarinn minn;)
Hlakka til að sjá myndir af Borgari í nýja skólabúningnum.
Post a Comment