Tuesday, 18 September 2007

Sá á kvölina sem á völina

Við fengum skilaboð í dag frá Ravensbourne skólanum, sem Atli og Unnur eru í, að það hefði losnað pláss fyrir Borgar þar. Þar sem þeir eru með langan biðlista þurfum við að ákveða okkur á morgun hvort við tökum plássið eða ekki. Við Þórir ætlum að fara þangað á morgun og fá hjá þeim ráðleggingar, vonandi getum við ákveðið okkur eftir það. Borgar er alveg jafn ringlaður og við, er ekki viss hvort hann vill vera áfram í Kelsey Park eða fara í Ravensbourne, en þetta kemur í ljós á morgun!

1 comment:

stina said...

Ég óska honum Borgari mínum til hamingju með þetta glæsilega tilboð

Vonandi getur hann ákveðið sig, og metið hvað hann vill gera,