Það var margt sem gerðist í dag
- Borgar byrjaði í nýjum skóla
- ég byrjaði í mínum skóla
- við keyptum okkur bíl
Borgari líst bara vel á nýja skólann - allavega ennþá eftir fyrsta daginn. Nú getur hann farið samferða Atla og Unni bæði í skólann og heim fyrst þau eru öll komin í sama skólann.
Mér líst líka vel á skólann minn. Það er ekki byrjuð hefðbundin kennsla ennþá, fyrsta vikan kallast "induction week" og er notuð í skráningu, kynningar og undirbúningskennslu. Í dag var skráning, fundur með deildarstjóranum, sem heitir Andy Dawson, og kynnisferð um skólann sem er mjög stór! Við erum um 15 sem erum skráð í Information Science, en í Bókasafns og upplýsingafræðideildinni eru um 180 nemendur. Á morgun verða svo áfram kynningar, við skoðum bókasafnið og tölvuþjónustuna og fundum svo meira með deildarstjóranum. Það er mjög gaman að vera loksins byrjuð í skólanum og ég hlakka heilmikið til vetrarins.
Við erum búin að kaupa okkur bíl. Við fundum Chrysler Grand Voyager 1997 sem við ákváðum að kaupa. Hann er með 6 hægindastólum og allur leðurklæddur að innan, algjör lúxusbíll. Það er verið að yfirfara hann núna og við fáum hann afhentan á fimmtudaginn, það verður gaman að hafa bíl og geta skoðað okkur um í Englandi. Til að setja punktinn yfir i-ið fórum við svo og keyptum okkur fish and chips í kvöldmat.
Myndir
Monday, 24 September 2007
Viðburðaríkur dagur
at
20:19
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Til hamingju með nýja bílinn.
Flottur nýi búningurinn hans Borgars:)
Gott að þér lítist vel á þinn skóla:)
Það vantar mynd af þér í skólabúning!
Til hamingju með að vera byrjuð í nýja skólanum bæði tvö og til hamingju með bílinn.
Gott að heyra að þér líst vel á skólann Fanney mín. Borgar er flottur í nýja skólabúningnum, en hann er nú alltaf flottur :) Og - til hamingju með nýja bílinn.
Love mamma.
Post a Comment