Tuesday, 2 October 2007

Búin að fá bílinn

Við erum búin að fá bæði bílinn og GPS tækið og notuðum helgina í að prófa hvort tveggja. Á laugardaginn fórum við í stuttan bíltúr í tvö þorp sem eru ekki mjög langt héðan, Eynsford og Farningham. Þessi þorp eru alveg eins og maður sér í breskum bíómyndum, pínulítil með einni aðalgötu sem fullt af krúttlegum húsum og þorpskráin standa við. Á sunnudaginn fórum við svo í Longleat dýragarðinn. Hann er rétt hjá Bath, u.þ.b. 2 1/2 klukkutíma akstur þangað. Þetta er svona safari garður sem maður keyrir í gegnum á sínum eigin bíl og er þá að keyra í gegnum svæðið sem dýrin eru á. Ég mæli með því að fara í svona dýragarð því þetta er alveg frábær skemmtun. Dýrin eru greinilega vön því að fá bíla og fólk inn á sitt svæði og eru ekkert hrædd, sum voru meira að segja svo athyglissjúk að starfsfólkið þurfti að koma og ýta þeim út af götunni til að umferðin gæti haldið áfram. Skemmtilegast af öllu var samt apasvæðið. Áður en maður fer inn á það eru nokkrar viðvaranir um að maður fari þangað á eigin ábyrgð og að aparnir séu varhugaverðir. Um leið og við komum inn á svæðið komu nokkrir og stukku upp á bílinn hjá okkur og reyndu að losa allt af honum sem hægt var. Við horfðum á tvo apa losa þéttilista af bílnum fyrir framan okkur og þeir reyndu mikið að ná loftnetinu af bílnum okkar, en það tókst sem betur fer ekki.
Eftir dýargarðsferðina fórum við til Bath og skoðuðum okkur aðeins um þar.
Myndir

4 comments:

Vala said...

Flottur bíll (og bílstjóri :-)) Þið eruð hrikalega dugleg í skoðunarferðurnum!!!!

Unknown said...

Til hamingju með nýja bílinn, hlökkum til að sjá hann betur!
Vonandi gengur Þóri vel að læra á GPS tækið :-)

Anonymous said...

Þetta er glæsilegur bíll. Til hamingju með hann.
Ég tek undir með Völu, þið eruð rosalega dugleg í skoðunarferðunum, ég verð alveg veik mig langar svo í ferðalag þegar ég les þetta, ferðin til Hveragerðis og sjoppuborgarinn í Eden á sunnudaginn stenst engan veginn samanburð við heimsókn til Bath!

stina said...

Flottur bíll og til hamingju með hann:)Höfðuð þið röddina á GPS tækinu?
Þið eruð svo dugleg að fara og skoða ykkur um. Enda um að gera meðan, þið búið á staðnum.:)
Mig farið að langa til að koma aftur til ykkar;)