Saturday, 27 October 2007

Lélegur bloggari

Uss ég stend mig ekki nærri því nógu vel í blogginu, orðið ansi langt síðan ég setti eitthvað inn síðast. Ástæðan er miklar annir hjá mér. Það þýðir samt ekki að það hafi svo mikið spennandi gerst, heldur er bara mikið að gera. Ég á að skila fyrsta verkefninu í skólanum á þriðjudaginn og þetta er jafnframt fyrsta ritgerðin sem ég skrifa í 10 ár! svo að það er dálítið stress búið að vera í gangi. Ritgerðin er eiginlega tilbúin núna, ég á bara eftir að laga "layoutið" á henni.
Það eru miðsvetrarfrí í skólum hér í Englandi, krakkarnir eru allir búnir að vera í fríi síðustu viku. Róbert og Arnaldur, vinir Atla, komu í heimsókn og voru í 5 daga, það var voða gaman að hafa þá. Þórir fór með þá á fótboltaleik á sunnudaginn, West Ham-Sunderland, við skruppum líka inn í London á laugardeginum, en að öðru leyti höfum við ekki gert neitt sérstakt, enda erum við Þórir ekki búin að vera í fríi.
Við förum yfir á vetrartíma í nótt, nánar tiltekið kl. 2, þá færist klukkan aftur um einn klukkutíma. Ég á alltaf svolítið erfitt með að átta mig á tímamismuni og er mikið búin að vera að velta þessu fyrir mér og held að ég sé farin að skilja þetta núna, við fáum að sofa klukkutíma lengur á morgnana eftir breytinguna :-)
Það er eitthvað vesen með hnappinn góða - hann virkar greinilega ekki hjá þeim sem nota Internet Explorer, ég nota Firefox og hann virkar flott hjá mér. Ég þarf að setjast niður og lesa Javascript bækurnar mínar, ef þið viljið kíkja á uppskriftasíðuna þá er slóðin fanneysuppskriftir.blogspot.com

2 comments:

Vala said...

Mikið var!!!!

stina said...

Mér finnst nú að ég heyri það á þér að þér taksit að halda ró þinni. Ég væri sennilega alltaf vakandi á nóttinni og hugsa hvað ég ætti eftir að gera mikið;-)

Þú stendur þig æðislega vel, enda ekki við öðru að búast:-)

Gaman fyrir Atla að fá vini sína í heimsókn.