Wednesday, 10 October 2007

Í skólanum í skólanum ...

... er svo sannarlega skemmtilegt að vera! Ég er í fjórum fögum á þessu misseri Internet Tecnologies, Introduction to Programming and Scripting, Principles of Computing and Information Technology og Systems Management. Tímarnir eru á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum svo að ég get notað miðvikudaga og föstudaga til að læra, sem er mjög gott því að þetta er allt alveg nýtt fyrir mér og ég þarf sko að lesa mér mikið til.
Þessar fyrstu vikur erum við aðallega búin að vera að læra HTML og XHTML en í næstu viku byrjum við að læra CSS, JavaScript og fleira.
Eins og þið sjáið þá notaði ég þessa nýfengnu þekkingu mína til að búa til hnapp á bloggsíðuna sem flytur ykkur yfir á uppskriftasíðuna, en því miður nær þekkingin ekki svo langt að ég geti látið hnappinn breyta um lit þegar bendillinn fer yfir hann eða látið bendilinn breytast þegar hann fer yfir hnappinn, en hnappurinn virkar samt alveg, prófið bara :-)

8 comments:

Vala said...

Hann breytir um lit - verður svona huggulega ljósblár þegar bendilinn fer yfir. Ég er mjög öfundsjúk yfir þessum kúrsum sem þú ert í!!!!

Vala said...

hmmm hann reyndar virkar ekki - skiptir bara um lit! Veit ekki hvort það er betra eða verra.

Anonymous said...

Ég er sko búin að prófa hnappinn fína og hann svínvirkar alveg. Þegar þú ferð að læra javascript þá getur þú gert fleiri æfingar.
Það verður gaman að fylgjast með bloggsíðunni breytast eftir því sem þú lærir meira :)

stina said...

Hann breytir lit, verður grænn á minni tölvu, en mér tekst ekki að opna til að geta lesið uppskriftirnar þinar.

En það er örugglega gaman að læra að geta gert þetta allt:)

Og vera ekki "takkafatlaður" eins og viss manneskja;).

Það verður gaman að sjá síðuna þína breytast eftir því sem þú lærir meira:)

Vala said...

kommon - þetta er orðið tíu daga gamalt!!!!! Farðu nú að skrifa kona

kagis57 said...

Hnappurinn virkar ekki og breytir ekki heldur um lit.

Vala said...

Fanney, plís skrifaðu!!!! Og hnappurinn virkar ekki :-(

Anonymous said...

Hnappurinn virkar fínt í Firefox en ekki í Internet Explorer, þið verðið bara að skipta um browser ;).

Er bara alveg vitlaust að gera í skólanum, hefur þú engan tíma til að blogga lengur kona góð?