Það eru tveir kettir í hverfinu sem koma stundum í garðinn hjá okkur. Þeir eru báðir heimiliskettir, en eru frekar styggir og vilja ekkert tala við mig þó að ég sé mikið búin að reyna að laða þá að mér. Ég hugsaði því með mér að leiðin að hjarta þeirra hlyti að liggja í gegnum magann og fór í Sainsburys og keypti kattamat sem ég setti á disk handa þeim úti í garði. Og viti menn! Með því lokkaði ég alla refina í hverfinu inn í garðinn okkar! Ég þarf víst að finna einhverja aðra leið til að hæna kettina að mér.
Monday, 19 November 2007
Saturday, 17 November 2007
Jólamarkaður
Við fórum á jólamarkað í St.Pauls kirkjunni sem er hérna í götunni okkar. Á honum var boðið upp á ýmislegt, eins og "nearly new items", fairtrade vörur, kökur, sultur, jólaskraut og ýmislegt fleira. Við Unnur náðum að versla heil ósköp, keyptum bækur handa Vigni, tvö spil, Cluedo og Operation, skál, kökudisk, rósmarínhlaup, smákökur, matreiðslubók, jólskraut... þetta kostaði nánast ekki neitt og er allt til styrktar góðu málefni :-)
Myndir
at
12:14
1 comments
Friday, 16 November 2007
Kominn vetur

Það er orðið ansi kalt hérna núna og greinilegt að það er kominn vetur. Frostið fór niður í -4 gráður í nótt og það er ansi kalt að koma út á morgnana. Vettlingar, húfur og treflar er allt komið í notkun og veitir ekki af! Ég tók þessa mynd út um svefnherbergisgluggann okkar, á henni sést vel hrímið á grasinu.
at
09:48
2
comments
Thursday, 8 November 2007
Puddings
Í morgunsjónvarpinu í gær var verið að ræða um að Bretar séu hættir að borða puddings og bresk börn í dag hafi jafnvel ekki smakkað hefðbundna breska eftirrétti. Þetta fannst okkur að sjálfsögðu alveg agalegt og ákváðum að þó að við séum ekki bresk skulum við viðhalda hefðinni. Við Unnur fórum inn í London í gær og þar fann ég mér bók sem heitir Good Old-Fashioned Puddings og nú verður búinn til eftirréttur einu sinni í viku. Hver getur staðist rétti sem heita Apple dappy, Sticky toffee pudding, Jam roly-poly, Hollygog pudding, Whim-wham, Pears in nightshirts, Spotted Dick, Granny's leg ... ekki ég!
at
11:36
7
comments
Friday, 2 November 2007
Halloween

Það var Halloween á miðvikudaginn. Það eru allar búðir búnar að vera fullar af alls konar Halloween dóti, sælgæti, servíettum og fleiru og svo náttúrulega graskerjum! Við keyptum okkur lítið grasker sem við skárum út, gerðum það reyndar í síðustu viku, bara svona til að prófa. Svo keyptum við eitthvað af nammi til að eiga ef einhverjir trick or treaters kæmu. Það komu nokkrar nornir og blóðsugur, en ekkert mjög margir. Við fórum á kynningu í skólanum hjá Atla og Unni um kvöldið kl 18.30 þannig að við vorum ekkert heima - frekar skrýtið að hafa kynninguna þennan dag!
Annars er heilmikið að gera í félagslífinu hjá okkur núna. Um síðustu helgi komu Bjarki frændi og Ingibjörg sem búa í Canterbury í heimsókn til okkar, Vala vinkona mín er í London og ég fór og hitti hana í gærkvöldi og svo eru Ási og Sigrún vinir okkar hjá okkur fram á sunnudag og við ætlum að fara saman á We Will Rock You í kvöld
at
09:45
2
comments