Það eru tveir kettir í hverfinu sem koma stundum í garðinn hjá okkur. Þeir eru báðir heimiliskettir, en eru frekar styggir og vilja ekkert tala við mig þó að ég sé mikið búin að reyna að laða þá að mér. Ég hugsaði því með mér að leiðin að hjarta þeirra hlyti að liggja í gegnum magann og fór í Sainsburys og keypti kattamat sem ég setti á disk handa þeim úti í garði. Og viti menn! Með því lokkaði ég alla refina í hverfinu inn í garðinn okkar! Ég þarf víst að finna einhverja aðra leið til að hæna kettina að mér.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
HAHAHAHA ... ! Eins gott að nágrannarnir frétti þetta ekki, það er ekki víst að þeir yrðu glaðir.
Ég var á námskeiði í brunavörnum í morgun og fékk að prófa að slökkva eld með slökkvitæki. Þetta var mjög fróðlegt og ég ætla að fara beint eftir vinnu að kaupa fleiri reykskynjara og slökkvitæki og ég hvet alla sem lesa til að gera slíkt hið sama ;).
Góða helgi!
hahahaha, það voru þá skeppnur sem þú hændir að þér:-)
Þér tekst líka að láta gæs eða var það álft að elta þig;)
Post a Comment