Friday, 2 November 2007

Halloween


Það var Halloween á miðvikudaginn. Það eru allar búðir búnar að vera fullar af alls konar Halloween dóti, sælgæti, servíettum og fleiru og svo náttúrulega graskerjum! Við keyptum okkur lítið grasker sem við skárum út, gerðum það reyndar í síðustu viku, bara svona til að prófa. Svo keyptum við eitthvað af nammi til að eiga ef einhverjir trick or treaters kæmu. Það komu nokkrar nornir og blóðsugur, en ekkert mjög margir. Við fórum á kynningu í skólanum hjá Atla og Unni um kvöldið kl 18.30 þannig að við vorum ekkert heima - frekar skrýtið að hafa kynninguna þennan dag!
Annars er heilmikið að gera í félagslífinu hjá okkur núna. Um síðustu helgi komu Bjarki frændi og Ingibjörg sem búa í Canterbury í heimsókn til okkar, Vala vinkona mín er í London og ég fór og hitti hana í gærkvöldi og svo eru Ási og Sigrún vinir okkar hjá okkur fram á sunnudag og við ætlum að fara saman á We Will Rock You í kvöld

2 comments:

Anonymous said...

Ohh mig langar svo að koma í heimsókn og mig langar líka að sjá We Will Rock You :(

Anonymous said...

Glæsilegt grasker! Ég vona að þið skemmtið ykkur vel á We Will Rock You.