Saturday, 17 November 2007

Jólamarkaður

Við fórum á jólamarkað í St.Pauls kirkjunni sem er hérna í götunni okkar. Á honum var boðið upp á ýmislegt, eins og "nearly new items", fairtrade vörur, kökur, sultur, jólaskraut og ýmislegt fleira. Við Unnur náðum að versla heil ósköp, keyptum bækur handa Vigni, tvö spil, Cluedo og Operation, skál, kökudisk, rósmarínhlaup, smákökur, matreiðslubók, jólskraut... þetta kostaði nánast ekki neitt og er allt til styrktar góðu málefni :-)
Myndir

1 comment:

stina said...

Sæt mynd af þér Unnur mín, þarna í kirkjudyrunum, og með ekkert smá dót í poka:)