Thursday, 8 November 2007

Puddings

Í morgunsjónvarpinu í gær var verið að ræða um að Bretar séu hættir að borða puddings og bresk börn í dag hafi jafnvel ekki smakkað hefðbundna breska eftirrétti. Þetta fannst okkur að sjálfsögðu alveg agalegt og ákváðum að þó að við séum ekki bresk skulum við viðhalda hefðinni. Við Unnur fórum inn í London í gær og þar fann ég mér bók sem heitir Good Old-Fashioned Puddings og nú verður búinn til eftirréttur einu sinni í viku. Hver getur staðist rétti sem heita Apple dappy, Sticky toffee pudding, Jam roly-poly, Hollygog pudding, Whim-wham, Pears in nightshirts, Spotted Dick, Granny's leg ... ekki ég!

7 comments:

Anonymous said...

Ég er alveg til í Sticky toffee pudding en mér líst verr á Spotted Dick!

Anonymous said...

Vonandi á maður eftir að smakka einhverja af þessum púddingum og taka þar með þátt í að viðhalda bresku hefðinni :-)

Anonymous said...

Ég er ekki alveg að skilja þessa klukku þarna neðst í comment-inu, því hún er núna 18:00 hjá mér. Hvað var henni seinkað mikið um daginn????

stina said...

Það verður gaman að smakka búðinga hjá ykkur, þegar þið eruð komin heim aftur:)

Ég hef verið að spá í þessa klukku eins og mamma þín:)

Anonymous said...

Þessi vefur er eflaust hýstur á server (tölvu) á vesturströnd Bandaríkjanna og tíminn á honum notaður til að það sé sama tímabelti á öllu sem er skráð svona til samræmingar.

Anonymous said...

Fyrra commentið var sett kl 15:58 að íslenskum tíma en þetta kl 15:59 ;)

Anonymous said...

Kl.18:35
Þá vitum við þetta með klukkuna.... og gaman að spjalla við ykkur via London :-)