Friday, 14 December 2007

Ferð til Belgíu

Borgar fór til Ypres í Belgíu með skólanum sínum á þriðjudaginn. Þau eru búin að vera að læra um fyrri heimsstyrjöldina í sögutímum og þetta var hluti af náminu hjá þeim. Það var lagt af stað kl. 5.30 um morguninn og komið heim kl. 23 um kvöldið. Þau skoðuðu meðal annars skotgrafir og hermannagrafreiti og fengu að borða "hermannamat" sem mér skilst að hafa ekki verið jafn vondur og var búist við. Það er jólamarkaður í bænum sem þau fengu líka að skoða og kaupa sér svolítið belgískt súkkulaði. Þetta var auðvitað algjört ævintýri og allir voðalega ánægðir með ferðina.

1 comment:

stina said...

maxellax
En gaman fyrir Borgar:)Fannst honum ekki alveg rosalega gaman:)