Monday, 10 December 2007

Jólaundirbúningur

Ég skilaði af mér ritgerð síðasta fimmtudag og þar með var hægt að fara að undirbúa jólin. Við tókum örlítið af jólaskrauti með okkur hingað og erum búin að setja það upp. Það er frekar lítið skreytt hér finnst okkur, varla að það sjáist aðventuljós í gluggum eða seríur í trjám, nema í einstaka húsi, en þá eru gjarna fest upp ljós á hvern einasta blett sem hægt er að festa eitthvað á!
Hins vegar eru mjög margir búnir að skreyta hjá sér jólatré, það virðist vera algengt að þau séu skreytt snemma í desember.
Jólafríið hjá mér byrjar 15. desember, en ég á reyndar að skila tveimur verkefnum um miðjan janúar svo að ég verð ekki alveg í fríi. Jólafríið hjá krökkunum byrjar 21. desember og svo byrja skólarnir aftur 7. janúar.

1 comment:

stina said...

Gaman að heyra að þið séuð farin að setja upp jólaskraut. Er ekki frekar skrítið að sjá ekki aðventuljós í hverjum glugga eins og hér á Íslandi.

Vona að þú eigir nú eitthvað frí fyrir jólin:)