Friday, 31 August 2007

Gestur í Beckenham

Þá er fyrsti gesturinn kominn til okkar, mamma kom í gær og ætlar að vera í eina viku. Við byrjuðum á að sýna henni nánasta umhverfið, fórum niður á High Street og svo inn í Bromley. Þar skoðuðum við það helsta - Primark, HM, Topshop, Boots og Caffé Nero, það jafnast fátt á við góða verslunarferð. Hún á nú samt eftir að sjá heilmikið annað en bara búðir meðan hún verður hjá okkur, þetta er bara byrjunin

Monday, 27 August 2007

Túristar í London

Við ákváðum að skreppa inn í London í dag og taka einn túristahring, þann fyrsta af mörgum. Við tókum lestina inn á London Bridge, gengum yfir Tower Bridge, skoðuðum Tower of London að utan (á dagskránni er að finna út hvort og þá hvenær eru tilboð á aðgangseyri þar inn). Fórum síðan og skoðuðum Big Ben, Houses of Parliament og Westminster Abbey sem var akkúrat verið að loka þegar við komum svo að við náðum ekki að skoða hana að innan. Settumst síðan í St. James's park og drukkum nestið okkar (vorum að sjálfsögðu með piknik kittið með okkur) og enduðum svo á að skoða Buckingham Palace áður en við fórum heim, dauðþreytt eftir allt labbið.
Myndir

Sunday, 26 August 2007

Sumardagar

Loksins er komið gott veður eftir heillangan rigningartíma. Það er búið að vera heitt og sólríkt um helgina, 26 stiga hiti og heiðskírt og verður gott eitthvað áfram. Í gær fórum við í piknik í Croydon road recreational ground, sem er garður niður í bæ. Þar flatmöguðum við í góða veðrinu, borðuðum nestið okkar og strákarnir léku sér í fótbolta.
Í Bromley er alþjóðlegur markaður núna um helgina, laugardag til mánudags. Við fórum þangað áðan og skoðuðum það sem var í boði. Það var heilmikið af mat frá ýmsum Evrópulöndum og líka eitthvað af skrautmunum og alvöru markaðsstemmning í gangi. Við keyptum okkur nokkra osta, foi gras og andalifrarpaté, hefðum getað keypt heil ósköp í viðbót en létum þetta duga.
Myndir

Friday, 24 August 2007

Skólinn fer að byrja

Atli og Unnur fóru í viðtal í Ravensbourne skólanum í morgun. Viðtalið gekk mjög vel, þau stóðu sig eins og hetjur og komust inn í skólann (það var svosem alveg fyrirsjáanlegt). Skólinn byrjar 5. september og ég held að þau hafi ekki hlakkað svona mikið til að byrja í skólanum síðan þau voru 6 ára. Þau verða saman í einu fagi, en fögin sem þau völdu sér eru:

Atli
Efnafræði
Líffræði
Sálfræði
Stærðfræði

Unnur
Fjölmiðlafræði
Lögfræði
Sálfræði
Viðskiptafræði

Borgar er á biðlista eftir að komast inn í þennan skóla, hans líkur jukust verulega við það að systkini hans komust inn. Hann á öruggt pláss í Kelsey Park skólanum og fer í viðtal þar á afmælisdaginn sinn 6. september.
Vignir fer í Worsley Bridge Junior School sem er í næstu götu við húsið okkar.
Borgar og Vignir þurfa báðir að vera í skólabúningum og þó að það séu ekki lengur skólabúningar í 6th form sem Atli og Unnur fara í þá er samt "dresskode" þannig að þau þurfa að vera klædd á ákveðinn hátt.

Wednesday, 22 August 2007

Íslenskt sumarveður

Það væri synd að segja að veðrið væri skemmtilegt, rigning, rok og kuldi. Þetta er eins og íslenskt sumarveður og búið að vera í nokkra daga. Fólkið hér er mjög upptekið af veðrinu, á öllum strætóstoppistöðvum er spjallað um veðrið og sessunautar manns í strætó koma allir með komment um veðrið. Samkvæmt veðurspánni á þetta að lagast á morgun og ætti jafnvel að verða fínt veður um helgina - ég vona það allavega. Við erum frekar löt í þessu slagveðri, erum bara heima við að dunda okkur, lesa og í tölvunni. Við bökuðum pönnukökur áðan, það kom í ljós að desilítramál er ekki til á heimilinu svo að við notuðum sjússamæli til að mæla hveiti og mjólk. Þær urðu samt alveg jafn góðar og venjulega, við borðuðum þær með clotted cream og jarðarberjum (sem við tíndum ekki sjálf), mmmmmmm

Sunday, 19 August 2007

Kelsey Park


Í dag fórum við inn í Kelsey Park. Hann er einn af görðunum hér í Beckenham, ekta piknik garður með stórum grasflötum og háum trjám. Það viðrar bara því miður ekki nógu vel til að fara í piknik, búin að vera rigning síðustu daga og þess vegna allt rennandi blautt. Eftir heimsóknina í garðinn fórum við í strætóleiðangur að leita að jarðarberjaakrinum og fundum hann, nú þurfum við bara að velja okkur tíma til að fara og tína jarðarber.
Myndir

Saturday, 18 August 2007

Natural History Museum

Í gær fórum við að skoða Natural History Museum. Þetta er mjög stórt og ofboðslega flott safn með nánast öllu sem viðkemur náttúrunni. Aðgangurinn er ókeypis svo að við bjuggumst við að það væri troðningur alls staðar en það var bara troðið hjá risaeðlunum, þær eru greinilega vinsælastar. Við skoðuðum þær að sjálfsögðu og líka fuglana, skordýrin, apana, þróun mannsins, geiminn, jarðfræði, þar sem við sáum risastóra hrafntinnu úr Heklu og fórum í jarðskjálftahermi þar sem var líkt eftir Kobe jarðskjálftanum í Japan sem var 7.3 á richter. Við hefðum getað skoðað mikið fleira en þetta var ágætt í bili. Vigni fannst svo skemmtilegt að hann vildi ekki fara heim og þegar hann vaknaði í morgun var það fyrsta sem hann spurði um hvort við gætum farið á safn í dag. Við erum ákveðin í að fara aftur fljótlega og skoða meira.
Myndir

Thursday, 16 August 2007

Miðbær Beckenham

Við röltum með Borgar og Vigni niður í miðbæ í dag, Atli og Unnur fóru með strætó inn í Bromley að skoða í búðir. Miðbærinn hér er ekki mjög stór, en það er dálítið af búðum, kaffhús og mikið af veitingastöðum. Nú og svo eru nokkrir pöbbar. Við settumst inn á Ye George Inn og fengum okkur drykk (það er leyfilegt að vera með börn þar til kl. 7 á kvöldin). Ye George Inn er búinn að vera á þessum stað frá árinu 1662 þó að húsið sjálft sé ekki upprunalegt og lítur út eins og týpískur breskur pöbb með rósóttu gólfteppi og gömlum húsgögnum. Á veggjunum hanga gamlar myndir frá Beckenham sem er mjög gaman að skoða og gefa heilmiklar upplýsingar um sögu staðarins. Á leiðinni heim stoppuðum við svo í kirkjugarðinum við St. George's Parish Church og leituðum að íkornum. Við sáum tvo en hvorugur þeirra var nógu spakur til að koma til okkar og fá hjá okkur hnetur.
Myndir

Wednesday, 15 August 2007

Strawberry fields forever

Þegar við vorum hér í Englandi fyrr í sumar sá ég fyrir algjöra tilviljun þegar ég sat í strætó, jarðarberjaakur þar sem hægt er að koma og tína jarðarber gegn gjaldi. Þessi akur er rétt hjá Beckenham, bænum sem við búum í. Ég ákvað þá að þangað skyldum við fara og tína okkur jarðarber þegar við værum flutt hingað. Ekki veit ég hvernig mér datt í hug að ég ætti eftir að muna hvaða strætó á að taka til að komast á akurinn, en því miður skrifaði ég ekkert hjá mér um það og því vitum við ekki alveg hvernig á að komast þangað. Það eru fjórar strætóleiðir sem koma til greina og í dag byrjuðum við að kanna hver þeirra er sú rétta. Við náðum að útiloka eina strætóleið svo að vonandi finnum við staðinn í vikunni og getum farið og tínt okkur jarðarber.

Monday, 13 August 2007

London Zoo

Við fórum í dýragarðinn í Regents Park í dag. Ég held að það sé sama hversu gamall maður verður, það er alltaf jafn skemmtilegt að fara í dýragarð! Við skoðuðum öll möguleg og ómöguleg dýr allt frá ljónum til sæhesta en það sem stendur uppúr er heimsóknin í skordýrahúsið, ég fæ ennþá hroll við tilhugsunina um pöddurnar þar! Batteríið í myndavélinni okkar gaf sig því miður svo að það er ekki mikið af myndum úr dýragarðinum, en við erum búin að kaupa nýtt batterí.
Eftir dýragarðsheimsóknina fórum við inn í Camden í Offspring skóbúðina þar sem Unnur keypti sér flottustu skó sem hún hefur nokkurn tíma séð!
Myndir

Sunday, 12 August 2007

Enskt lambakjöt


Við elduðum okkur enska bógsteik (boned shoulder) í kvöld. Þrátt fyrir að hafa ítrekað verið vöruð við útlensku lambakjöti, það væri alveg óætt, ákváðum við að vera hugrökk og prófa enska lambakjötið. Útkoman var svona líka góð! Ekkert athugavert við enskt lambakjöt, það er bara alveg ljómandi gott. Við eigum alveg örugglega eftir að elda það oft meðan við erum hér.

Saturday, 11 August 2007

7 Ashfield Close

Húsið okkar er við Ashfield Close sem er lítill botnlangi rétt við æfingasvæði Crystal Palace. Það er á tveimur hæðum, ég veit ekki hversu stórt það er í fermetrum. Á efri hæðinni eru fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi, annað inn af hjónaherberginu. Atli og Unnur hafa sér herbergi en Borgar og Vignir eru saman í herbergi. Atla herbergi verður gestaherbergi þegar við fáum gesti. Á neðri hæðinni er eldhús með borðkrók, stór stofa, gestasnyrting og bílskúr. Úr stofunni er gengið í garð sem snýr í norð-austur. Það er heilmikið dýralíf hérna úti, við heyrum mikið í fuglum og stöku sinnum koma íkornar inn í garðinn. Það er um 7 mínútna gangur á Beckenham Junction lestarstöðina og þaðan náum við lest til London Victoria á um 12 mínútum, við erum sennilega fljótari niður í miðbæ London en margir sem búa í London! Við botnlangann okkar stoppar svo strætó sem gengur inn í Bromley, en þar er stór miðbæjarkjarni.
Myndir

Friday, 10 August 2007

Komin í samband við umheiminn

Það gengur allt vel hjá okkur, við erum búin að vera á fullu að koma okkur fyrir og kynnast nýju umhverfi. Við byrjuðum á að fara í IKEA og kaupa búslóð fyrir 6 manna fjölskyldu, það hefði verið mun þægilegra ef hún fengist sem pakki, þá hefðum við hugsanlega ekki þurft að eyða 6 klukkutímum í IKEA fyrsta daginn okkar hér! Nú og svo eru ótal hutir sem þarf að eignast - sjónvarp, ryksuga, þvottasnúra, waterfilter ... dósaopnari er ein af nauðsynjununum sem ég uppgötvaði að okkur vantar ennþá.
Við fengum nettengingu og síma í dag, svo að þetta er allt að koma. Við erum öll komin með ný GSM númer svo að ef þið viljið hafa samband við okkur þá virka gömlu númerin ekki lengur.