Saturday, 27 October 2007

Lélegur bloggari

Uss ég stend mig ekki nærri því nógu vel í blogginu, orðið ansi langt síðan ég setti eitthvað inn síðast. Ástæðan er miklar annir hjá mér. Það þýðir samt ekki að það hafi svo mikið spennandi gerst, heldur er bara mikið að gera. Ég á að skila fyrsta verkefninu í skólanum á þriðjudaginn og þetta er jafnframt fyrsta ritgerðin sem ég skrifa í 10 ár! svo að það er dálítið stress búið að vera í gangi. Ritgerðin er eiginlega tilbúin núna, ég á bara eftir að laga "layoutið" á henni.
Það eru miðsvetrarfrí í skólum hér í Englandi, krakkarnir eru allir búnir að vera í fríi síðustu viku. Róbert og Arnaldur, vinir Atla, komu í heimsókn og voru í 5 daga, það var voða gaman að hafa þá. Þórir fór með þá á fótboltaleik á sunnudaginn, West Ham-Sunderland, við skruppum líka inn í London á laugardeginum, en að öðru leyti höfum við ekki gert neitt sérstakt, enda erum við Þórir ekki búin að vera í fríi.
Við förum yfir á vetrartíma í nótt, nánar tiltekið kl. 2, þá færist klukkan aftur um einn klukkutíma. Ég á alltaf svolítið erfitt með að átta mig á tímamismuni og er mikið búin að vera að velta þessu fyrir mér og held að ég sé farin að skilja þetta núna, við fáum að sofa klukkutíma lengur á morgnana eftir breytinguna :-)
Það er eitthvað vesen með hnappinn góða - hann virkar greinilega ekki hjá þeim sem nota Internet Explorer, ég nota Firefox og hann virkar flott hjá mér. Ég þarf að setjast niður og lesa Javascript bækurnar mínar, ef þið viljið kíkja á uppskriftasíðuna þá er slóðin fanneysuppskriftir.blogspot.com

Wednesday, 10 October 2007

Í skólanum í skólanum ...

... er svo sannarlega skemmtilegt að vera! Ég er í fjórum fögum á þessu misseri Internet Tecnologies, Introduction to Programming and Scripting, Principles of Computing and Information Technology og Systems Management. Tímarnir eru á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum svo að ég get notað miðvikudaga og föstudaga til að læra, sem er mjög gott því að þetta er allt alveg nýtt fyrir mér og ég þarf sko að lesa mér mikið til.
Þessar fyrstu vikur erum við aðallega búin að vera að læra HTML og XHTML en í næstu viku byrjum við að læra CSS, JavaScript og fleira.
Eins og þið sjáið þá notaði ég þessa nýfengnu þekkingu mína til að búa til hnapp á bloggsíðuna sem flytur ykkur yfir á uppskriftasíðuna, en því miður nær þekkingin ekki svo langt að ég geti látið hnappinn breyta um lit þegar bendillinn fer yfir hann eða látið bendilinn breytast þegar hann fer yfir hnappinn, en hnappurinn virkar samt alveg, prófið bara :-)

Tuesday, 2 October 2007

Búin að fá bílinn

Við erum búin að fá bæði bílinn og GPS tækið og notuðum helgina í að prófa hvort tveggja. Á laugardaginn fórum við í stuttan bíltúr í tvö þorp sem eru ekki mjög langt héðan, Eynsford og Farningham. Þessi þorp eru alveg eins og maður sér í breskum bíómyndum, pínulítil með einni aðalgötu sem fullt af krúttlegum húsum og þorpskráin standa við. Á sunnudaginn fórum við svo í Longleat dýragarðinn. Hann er rétt hjá Bath, u.þ.b. 2 1/2 klukkutíma akstur þangað. Þetta er svona safari garður sem maður keyrir í gegnum á sínum eigin bíl og er þá að keyra í gegnum svæðið sem dýrin eru á. Ég mæli með því að fara í svona dýragarð því þetta er alveg frábær skemmtun. Dýrin eru greinilega vön því að fá bíla og fólk inn á sitt svæði og eru ekkert hrædd, sum voru meira að segja svo athyglissjúk að starfsfólkið þurfti að koma og ýta þeim út af götunni til að umferðin gæti haldið áfram. Skemmtilegast af öllu var samt apasvæðið. Áður en maður fer inn á það eru nokkrar viðvaranir um að maður fari þangað á eigin ábyrgð og að aparnir séu varhugaverðir. Um leið og við komum inn á svæðið komu nokkrir og stukku upp á bílinn hjá okkur og reyndu að losa allt af honum sem hægt var. Við horfðum á tvo apa losa þéttilista af bílnum fyrir framan okkur og þeir reyndu mikið að ná loftnetinu af bílnum okkar, en það tókst sem betur fer ekki.
Eftir dýargarðsferðina fórum við til Bath og skoðuðum okkur aðeins um þar.
Myndir