Borgar fór til Ypres í Belgíu með skólanum sínum á þriðjudaginn. Þau eru búin að vera að læra um fyrri heimsstyrjöldina í sögutímum og þetta var hluti af náminu hjá þeim. Það var lagt af stað kl. 5.30 um morguninn og komið heim kl. 23 um kvöldið. Þau skoðuðu meðal annars skotgrafir og hermannagrafreiti og fengu að borða "hermannamat" sem mér skilst að hafa ekki verið jafn vondur og var búist við. Það er jólamarkaður í bænum sem þau fengu líka að skoða og kaupa sér svolítið belgískt súkkulaði. Þetta var auðvitað algjört ævintýri og allir voðalega ánægðir með ferðina.
Friday, 14 December 2007
Monday, 10 December 2007
Jólaundirbúningur
Ég skilaði af mér ritgerð síðasta fimmtudag og þar með var hægt að fara að undirbúa jólin. Við tókum örlítið af jólaskrauti með okkur hingað og erum búin að setja það upp. Það er frekar lítið skreytt hér finnst okkur, varla að það sjáist aðventuljós í gluggum eða seríur í trjám, nema í einstaka húsi, en þá eru gjarna fest upp ljós á hvern einasta blett sem hægt er að festa eitthvað á!
Hins vegar eru mjög margir búnir að skreyta hjá sér jólatré, það virðist vera algengt að þau séu skreytt snemma í desember.
Jólafríið hjá mér byrjar 15. desember, en ég á reyndar að skila tveimur verkefnum um miðjan janúar svo að ég verð ekki alveg í fríi. Jólafríið hjá krökkunum byrjar 21. desember og svo byrja skólarnir aftur 7. janúar.
at
09:25
1 comments