Friday, 4 January 2008

Gleðilegt ár!

Gleðilegt ár öll og takk fyrir það sem var að líða. Við erum búin að hafa það alveg ógurlega gott yfir jól og áramót, vorum í algjörri afslöppun, borðuðum, sváfum, lásum, spiluðum og horfðum á sjónvarpið. Við vorum með gesti yfir áramótin, Ingunn vinkona Unnar og mamma voru hjá okkur. Við elduðum kalkúna eins og venjulega á gamlárskvöld, horfðum á skaupið og fórum svo út kl. 12 að fylgjast með flugeldunum. Það var nú ekki mikið skotið upp! Ég held að allt hverfið hafa verið með álíka mikið af flugeldum og ein meðal fjölskylda á Íslandi, ekki að við getum leyft okkur að hneykslast á því þar sem við keyptum enga flugelda í ár.

1 comment:

stina said...

Gleðilegt ár svona eiga jólin að vera afslappandi og skemmtileg.
Það var skotið mikið hér á landinu góða, en samt fannst mér það minna en í fyrra, verðrið var líka ekkert að laga sig til fyrir flugeldana. Kv. mamma, tengdó og amma