Parísarferðin var alveg meiriháttar skemmtileg. Veðrið var fínt og hótelið alveg ljómandi og hvað er hægt að biðja um meira? Við lögðum af stað kl. 6 á laugardagsmorgun og vorum komin til Parísar um hádegi. Lentum í smá vandræðum með að finna bílastæði en fundum loksins bílastæðahús í göngufæri frá hótelinu. Á laugardeginum fórum við og skoðuðum Notre Dame, röltum um Latínuhverfið og settumst inn á kaffihús þar, fórum svo og skoðuðum Sacre Coeur, röltum um í Montmartre og fengum okkur kvöldmat þar. Við vorum komin seint upp á hótel og allir þreyttir eftir ferðalagið svo að fórum bara beint að sofa. Eftir morgunmat á sunnudag fórum við í Eiffelturninn, fórum alla leið upp á efstu hæð! Skoðuðum svo Sigurbogann og Champs Elysees, komum örstutt við á Bastillutorginu á leiðinni að sækja bílinn,brunuðum svo heim og vorum komin um 11.
Krökkunum fannst svo gaman í París að ég held að þau vilji öll flytja þangað og næst þegar við flytjum til útlanda þá vilja þau að við flytjum til Parísar :-) Við stefnum á að fara í að minnsta kosti eina svona Parísarferð í viðbót, þetta er ótrúlega lítið mál (segi ég sem þurfti ekki að keyra í París).
Myndir
Monday, 21 January 2008
Parísarferðin
at
09:38
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Mér líst vel á myndirnar sem þið sýnduð. Mig langar ofasalega mikið að koma til Parísar, hef aldrei komið þangað:(. Það er alveg frábært fyrir ykkur að nota ykkur það að fara yfir til Frakklands á meðan þið komist á svona ljúfan máta. Love amma
Post a Comment