Sunday, 27 January 2008

Snowey the hamster

Vignir og Snowey
Bekkurinn hans Vignis á hamstur sem krakkarnir skiptast á að taka með sér heim um helgar. Þessa helgi var komið að Vigni að fá Snowey heim, hann var búinn að bíða með eftirvæntingu eftir því. Hamsturinn er algjört krútt og það fer ekki á milli mála að þessi fjölskylda er búin að vera í gæludýrasvelti í hálft ár, við erum búin að skiptast á að halda á honum og dást að honum alla helgina, ég hugsa jafnvel að greyið litla verði feginn að komast aftur í skólann á morgun þar sem hann fær að vera í friði.

2 comments:

stina said...

Hæ, mikið í er hamsturinn sætur:),Þú verður eiginglega að fá einn til að hafa hjá þér elsku Vignir minn, meðan þú býrð í Englandi.

Lífið á Njarðargötunni said...

Gaman að sjá þessa síðu! Ferlega sætur hamstur!
Kv. Áslaug