Thursday, 28 February 2008

Afmæli

Jæja þá er afmælistímabilið hafið! Venjulega stendur það yfir í 12 daga en þar sem í ár er hlaupár þá stendur það yfir í 13 daga. Atli og Unnur eiga afmæli í dag, eru 17 ára, ég á afmæli á laugardaginn, Þórir á afmæli á föstudag í næstu viku eða 7. mars og svo Vignir þriðjudaginn þar á eftir eða 11. mars. Það verður nú heldur minna um afmælisveislur en venjulega en í staðinn förum við mun meira út að borða en venjulega!

2 comments:

Anonymous said...

Innilega til hamingju með afmælin, þið öll. Verst að geta ekki komið í afmælisveislurnar, en það stendur væntanlega til bóta á næsta ári :)
Ástar- og saknaðarkveðjur. M.

stina said...

Mínar innilegustu hamingjuóskir með afmælin:-)Það er svolítið skrítið að fara ekki í neina afmælisveislur núna. Sakna ykkar alveg rosalega mikið.

Kveðja mamma