Friday, 15 February 2008

Farin til Íslands

Jæja þá eru Atli og Unnur farin til Íslands. Þau flugu kl. 8 í morgun, allt gekk vel og þau eru lent. Pabbi Róberts, vinar Atla, sótti þau á flugvöllinn. Það verður væntanlega stíf dagskrá hjá þeim allan tímann meðan þau eru á Íslandi að hitta ættingjana og vinina og þau eru búin að hlakka ógurlega mikið til.

1 comment:

stina said...

Ég hlakka til að sjá þau, elsku krakkana mína. Ég veit að þau voru á fullu í dag. Og verða það alveg örugglega allan tímann.


Kv. mamma