Ég hef alltaf verið á þeirri skoðun að súkkulaðigosbrunnar séu frekar ógirnilegir, en í vikunni lét ég undan þrýstingi frá krökkunum og keypti einn. Þeir eru alls staðar á tilboði núna fyrir Valentínusardaginn og ég fékk einn lítinn eldrauðan fyrir slikk.
Í gærkvöldi prófuðum við svo græjuna, vorum með tvenns konar mjólkursúkkulaði sem við bræddum saman og bættum við olíu eins og er mælt með. Útkoman var sko ekki jafn glæsileg og á umbúðunum, þar er mynd af fallega flæðandi súkkulaði sem streymir jafnt yfir gosbrunninn en okkar svona frussaðist meira í gusum og var ekki mjög fallegt, kannski er ekki sama hvaða súkkulaði er notað. En þetta var samt voðalega gott, og við borðuðum einhver ósköp - svo mikið að ég held að mig langi ekki í súkkulaði í bráð!
Saturday, 2 February 2008
Súkkulaðigosbrunnur
at
10:05
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
´Það er ekki útlitið heldur bragðið sem gildir með svona hluti:-)
Það verður örugglega stuttí að það koma fínar bunur úr gosbrunninum. Ég er bara orðin svöng í nammi:-)
love, mamma
Post a Comment