Við skiluðum skattframtalinu okkar í morgun, ekki nema einum degi eftir skiladag, en heilum fjórum dögum áður en viðbótarfresturinn rann út. Ég held að við höfum aldrei skilað svona snemma áður enda erum við Íslendingar og því tilheyrandi að skila seint. Mér finnst eiginlega alveg ótrúlegt hvað maður dregur þetta alltaf því þetta er orðið svo lítið mál, allar okkar upplýsingar voru komnar inn nema launin hans Borgars, og svo þurftum við að flytja upplýsingarnar um allar milljónirnar sem við áttum á bankareikningum um áramót inn í framtalið í gegnum netbankann, þær voru ekki komnar inn. En það er samt voðalega gott þegar þetta er búið, alltaf eins og hálfgert afrek að ljúka þessu.
Thursday, 27 March 2008
Tuesday, 25 March 2008
Grænmetisfæði
Ég hef ákveðið að gerast grænmetisæta. Ekki þó að eilífu heldur bara næstu tvær vikurnar. Það eru eiginlega tvær ástæður fyrir þessu. Sú fyrri er sú að ég hef oft velt því fyrir mér hvernig það sé að sleppa kjöti og fiski, hvort manni líði betur af því og hvort maður verði mjög leiður á matnum sem maður borðar. Seinni ástæðan er sú að það er orðið tímabært að taka hressilega til í mataræðinu hjá mér, það er búin að vera ansi mikil óhollusta í gangi upp á síðkastið og hún náði hámarki um páskana. Svo að nú er það bara hollusta framundan!
at
10:40
1 comments
Monday, 24 March 2008
Gleðilega páska
Páskadagur var frekar hefðbundinn hjá okkur með tilheyrandi páskaeggjaleit og súkkulaðiáti. Krakkarnir fengu send Nóa Síríus páskaegg frá Íslandi og við gáfum þeim líka súkkulaðifígúrur sem voru hundur, kýr og önd. Við Þórir aftur á móti fengum okkur karamellupáskaegg frá Hotel Chocolat sem slær sko Nóa út enítæm!
Það hefur snjóað bæði í gær og í dag og Vignir og George vinur hans sem býr í húsinu á móti voru komnir út snjókast kl. hálf tíu í gærmorgun. Ég hld að þeir hafi náð að skrapa í sinnhvorn snjóboltann því það of hlýtt til að snjóinn festi.
Við vorum að hugsa um að fara í tivolígarð í dag, en ákváðum að fresta því þar sem veðrið er ekkert sérlega skemmtilegt svo að það bíður betri tíma.
at
12:27
0
comments
Friday, 21 March 2008
Páskafrí
Við byrjuðum í páskafríi í dag, loksins! Skírdagur er ekki frídagur hérna svo að það voru bara allir í skóla og vinnu í gær, svolítið skrítið, og svo eru allar búðir opnar í dag. Við Þórir erum að hugsa um að kíkja inn í Bromley á eftir og gá hvort við geum ekki keypt eitthvað smá páskaskraut, mér hefur ekki enn tekist að finna neitt svoleiðis, ætli ég verði ekki að láta mér nægja greinar og páskaliljur að þessu sinni.
Í morgun fórum við Vignir í páskaeggjaleit eða easter egg hunt í Croydon Road Recreational Park sem er almenningsgarður rétt hjá okkur. Við borguðum eitt pund til að fá fötu og fórum svo að leita að litlum trékubbum sem lágu á jörðinni út um allan garð. Þegar búið var að finna 10 kubba fékk maður páskaegg fyrir.
at
11:23
1 comments
Friday, 14 March 2008
Lögguhúmor
Þegar ég fer heim úr skólanum tek ég venjulega Victoria line frá Warren Street yfir á Victoria. Í gær var tilkynning á neðanjarðarstöðinni um að það væru seinkanir á Victoria line vegna "incident with a passenger" og þegar ég kom niður á brautarpallinn var lesin upp tilkynning um að það væru engar lestarferðir í átt að Victoria, farþegar yrðu að nota aðrar línur. Það var lögreglumaður staddur á lestarstöðinni og ég spurði hann hvers vegna þetta væri. Svarið sem ég fékk var "If I tell you that I will have to kill you".
at
11:02
2
comments
Sunday, 9 March 2008
Sirkus Billy Smart
Helena og Jonni voru hjá okkur um helgina og á föstudagskvöldið skelltum við okkur öll í sirkus inni í Bromley. Þetta var sirkus Billy Smart, sá sami og var alltaf í sjónvarpinu á gamlárskvöld í gamla daga. Þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt! Reyndar voru engin dýr, en það voru loftfimleikamenn og töframaður (sem var frekar hallærislegur þó að atriðið hans væri fínt) og svo alveg frábær trúður. Alveg frábær skemmtun - miklu skemmtilegra en að horfa á í sjónvarpinu!
at
16:56
1 comments
Monday, 3 March 2008
Eurovision
Á þessum árstíma er maður alltaf að byrja að spá í Eurovision, greinilega alveg sama hvar í heiminum maður er. Framlag Englands var valið á laugardagskvöldið og við horfðum á seinni hlutann á dagskránni. Það voru 6 lög sem kepptu í pörum, 3 dómarar í X-factor stíl völdu á milli tveggja laga í einu þannig að þrjú lög komust áfram en þrjú duttu úr keppni. Af þeim þremur sem duttu úr keppni valdi svo aðal dómarinn eitt til að halda áfram, lag sem að hans mati átti skilið að komast í undanúrslit. Síðan var símakosning um hvert þessara fjögurra laga yrði framlag Englands í Eurovision. Og hvaða lag ætli hafi svo unnið? Jú lagið sem datt úr keppni og aðal dómarinn valdi til að halda áfram, skondið ekki satt. Ef þið viljið heyra lagið og sjá flytjandann þá er það hér.
Andy Abraham
at
10:28
1 comments