Á þessum árstíma er maður alltaf að byrja að spá í Eurovision, greinilega alveg sama hvar í heiminum maður er. Framlag Englands var valið á laugardagskvöldið og við horfðum á seinni hlutann á dagskránni. Það voru 6 lög sem kepptu í pörum, 3 dómarar í X-factor stíl völdu á milli tveggja laga í einu þannig að þrjú lög komust áfram en þrjú duttu úr keppni. Af þeim þremur sem duttu úr keppni valdi svo aðal dómarinn eitt til að halda áfram, lag sem að hans mati átti skilið að komast í undanúrslit. Síðan var símakosning um hvert þessara fjögurra laga yrði framlag Englands í Eurovision. Og hvaða lag ætli hafi svo unnið? Jú lagið sem datt úr keppni og aðal dómarinn valdi til að halda áfram, skondið ekki satt. Ef þið viljið heyra lagið og sjá flytjandann þá er það hér.
Andy Abraham
Monday, 3 March 2008
Eurovision
at
10:28
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Lagið er afskaplega fallegt og vel sungið.
En svo veit maður bara aldrei hvað verður fyrir valinu. En þetta lagt líst mér vel á.
Ástarkveðja til ykkar allra mamma
Sakna ykkar mikið
Post a Comment