Ég hef ákveðið að gerast grænmetisæta. Ekki þó að eilífu heldur bara næstu tvær vikurnar. Það eru eiginlega tvær ástæður fyrir þessu. Sú fyrri er sú að ég hef oft velt því fyrir mér hvernig það sé að sleppa kjöti og fiski, hvort manni líði betur af því og hvort maður verði mjög leiður á matnum sem maður borðar. Seinni ástæðan er sú að það er orðið tímabært að taka hressilega til í mataræðinu hjá mér, það er búin að vera ansi mikil óhollusta í gangi upp á síðkastið og hún náði hámarki um páskana. Svo að nú er það bara hollusta framundan!
Tuesday, 25 March 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Verði þér að góðu Fanney mín :)
Hérna er hiti um frostmark en ekki þó snjór eins og hjá ykkur!
Ástarkv. M.
p.s. rosalega er þetta girnileg klukka hjá þér.
Post a Comment