Þegar ég fer heim úr skólanum tek ég venjulega Victoria line frá Warren Street yfir á Victoria. Í gær var tilkynning á neðanjarðarstöðinni um að það væru seinkanir á Victoria line vegna "incident with a passenger" og þegar ég kom niður á brautarpallinn var lesin upp tilkynning um að það væru engar lestarferðir í átt að Victoria, farþegar yrðu að nota aðrar línur. Það var lögreglumaður staddur á lestarstöðinni og ég spurði hann hvers vegna þetta væri. Svarið sem ég fékk var "If I tell you that I will have to kill you".
Friday, 14 March 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Góður húmor hjá ensku löggunni :)
Hann var að grínast, var það ekki??
Kv. M.
Og svaraði frúin ekki að bragði : "Hold me, Thrill me, but please don´t Kill me"
Kv Jói
Post a Comment