Við byrjuðum í páskafríi í dag, loksins! Skírdagur er ekki frídagur hérna svo að það voru bara allir í skóla og vinnu í gær, svolítið skrítið, og svo eru allar búðir opnar í dag. Við Þórir erum að hugsa um að kíkja inn í Bromley á eftir og gá hvort við geum ekki keypt eitthvað smá páskaskraut, mér hefur ekki enn tekist að finna neitt svoleiðis, ætli ég verði ekki að láta mér nægja greinar og páskaliljur að þessu sinni.
Í morgun fórum við Vignir í páskaeggjaleit eða easter egg hunt í Croydon Road Recreational Park sem er almenningsgarður rétt hjá okkur. Við borguðum eitt pund til að fá fötu og fórum svo að leita að litlum trékubbum sem lágu á jörðinni út um allan garð. Þegar búið var að finna 10 kubba fékk maður páskaegg fyrir.
Friday, 21 March 2008
Páskafrí
at
11:23
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Hæ! Fékk Vignir stórt páskaegg? Var það pappaegg eða málað hænuegg?
Það hefur örugglega verið gaman hjá Vigni mínum að leita að kubbunum :)
Ég er ekki með neitt páskaskraut núna, það finnst ekkert í geymslunni minni(hún er útúrstútfull)eins og ég fæ mikla útrás fyrir glysgirninga mína að of hlaða borð og hillur með páskaskrauti. (Og jólaskrauti þegar það á við)
Óska ykkur öllum gleðilegra páska:)
Sakna ykkar alveg óbærilega mikið.
Páska kveðja, ykkar mamma - amma Stína
Post a Comment