Helena og Jonni voru hjá okkur um helgina og á föstudagskvöldið skelltum við okkur öll í sirkus inni í Bromley. Þetta var sirkus Billy Smart, sá sami og var alltaf í sjónvarpinu á gamlárskvöld í gamla daga. Þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt! Reyndar voru engin dýr, en það voru loftfimleikamenn og töframaður (sem var frekar hallærislegur þó að atriðið hans væri fínt) og svo alveg frábær trúður. Alveg frábær skemmtun - miklu skemmtilegra en að horfa á í sjónvarpinu!
Sunday, 9 March 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
það er mikið meira gaman að vera á staðnum eins og þið voruð, þá er þetta allt svo nálægt manni,þetta hefur örugglega verið mjög skemmtilegt:-)
Var ekki bara notalegt að fá þau til ykkar yfir helgin
Kv. mamma
Post a Comment