Thursday, 27 March 2008

Skattskýrslan frá

Við skiluðum skattframtalinu okkar í morgun, ekki nema einum degi eftir skiladag, en heilum fjórum dögum áður en viðbótarfresturinn rann út. Ég held að við höfum aldrei skilað svona snemma áður enda erum við Íslendingar og því tilheyrandi að skila seint. Mér finnst eiginlega alveg ótrúlegt hvað maður dregur þetta alltaf því þetta er orðið svo lítið mál, allar okkar upplýsingar voru komnar inn nema launin hans Borgars, og svo þurftum við að flytja upplýsingarnar um allar milljónirnar sem við áttum á bankareikningum um áramót inn í framtalið í gegnum netbankann, þær voru ekki komnar inn. En það er samt voðalega gott þegar þetta er búið, alltaf eins og hálfgert afrek að ljúka þessu.

3 comments:

Anonymous said...

...milljónir hvað??? Ég fékk frest til 2. apríl en er samt næstum því búin :-)
kv. Vala

Anonymous said...

Við sóttum ekki um frest heldur skiluðum á réttum tíma í fyrsta skiptið í mörg ár. Þetta er orðið ótrúlega auðvelt. Það eru einmitt bara milljónirnar sem maður þarf að færa inn, maður þreytist helst á að slá inn þessar háu upphæðir.
Góða helgi,
Helena

Anonymous said...

Flott, þá er það bara álagningarseðillinn næst :)