Thursday, 24 April 2008

Gleðilegt sumar!

Sumardagurinn fyrsti er ekki haldinn hátíðlegur hér, svo að í staðinn fyrir skrúðgöngur og hátíðarhöld sem við erum vön þá eru bara allir í vinnu eða skóla, nema Borgar. Hann er heima í dag vegna þess að kennararnir hans eru í eins dags verkfalli í dag.
Ætli við höldum nú samt ekki í hefðina og grillum í kvöld eins og við gerum venjulega á sumardaginn fyrsta.
Við Unnur kvöddum veturinn með stæl í gærkvöldi, fórum og lærðum að dansa salsa. Það eru tímar á hverju miðvikudagskvöldi hérna niðri í bæ, bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Við vorum í byrjendahópnum í gær og stóðum okkur bara ljómandi vel þó að ég segi sjálf frá. Í næstu viku ætlum við aftur en þá ætlum við að vera með þeim sem eru lengra komnir!
Upplýsingar um salsaklúbbinn

4 comments:

Anonymous said...

Gaman hjá ykkur. Unnur fór reyndar á salsa-námskeið þegar hún var hérna heima um daginn.

Kv. M.

Ullarvettlingar said...

Oh öfunda ykkur að fara í Salsa, minnir mig á mynd með Richard Gere og JayLo sem var sýnd ekki alls fyrir löngu - snilldartaktar hjá karlinum í henni ;-)

stina said...

Hæ! en gaman hjá ykkur að skella ykkur á salsanámskeið.

Þetta er kanski eitthvað sem ég ætti að prufa:)ha ha ....

Kveðja mamma, tengdó og amma

Anonymous said...

Jii hvað þið eruð miklar salsa pæjur!

Ég hélt upp á sumardaginn fyrsta í Noregi en þar er líka bara venjulegur vinnudagur, skrítnir þessir útlendingar :-/.

Takk fyrir veturinn...