Það eru búnar að verða ótrúlegar breytingar á veðrinu síðustu daga.
Á föstudaginn fór hitinn upp í 19 stig og á föstudagskvöldið þegar við vorum á leiðinni heim frá að keyra Atla og Unni á flugvöllinn var alls staðar setið úti og fólk var léttklætt. Í gærmorgun byrjaði svo að snjóa og það snjóaði heilmikið! Fótboltanum var aflýst bæði hjá Borgari og Vigni út af snjónum svo að Vignir fór í staðinn út að leika sér í snjónum. Við skruppum inn í Croydon um hádegið og leiðin þangað var vörðuð snjókörlum!
Myndir
Monday, 7 April 2008
Snjór!
at
07:52
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Flott mynd af lokabaráttu árstíðanna
kv. Jói
Hérna á Fróni er sumarið að koma og hitinn á leiðinni upp í 19 stig.
Kv. M.
Flottar vetrarmyndir í fyrstu viku apríl:)
Er ekki farið að hlýna aftur?
kv. mamma, amma, tengdó
Post a Comment