Saturday, 5 April 2008

Spring break

Það er vorfrí í skólunum núna, stendur til 21. apríl. Þetta bætir krökkunum heldur betur upp hvað páskafríið var stutt. Atli og Unnur fóru til Íslands í gær og verða þar í rúma viku, en Borgar og Vignir verða heima, við ætlum að reyna að gera eitthvað sekmmtilegt með þeim á meðan. Við sáum það í gær að í tilefni af fríinu er búið að setja upp tívolí víðs vegar um London, meðal annars eitt í Crystal Palace garðinum sem er ekki langt frá okkur, kannski að við skellum okkur bara í tívolí.

1 comment:

stina said...

Það er verst að hún Unnur mín var með svo slæma magapest s.l. nótt, vonandi verður hún orðin góð á morgun:)
Ég er að vonast til að heyra frá þeim á morgunn því Siggi M. ætlar að fá að gista hjá mér næstu nótt:) Og það gæti verið gaman fyrir frændsystkinin að hittast smástund.
Ég vona að Borgar og Vignir fái að gera eitthvað skemmtilegt, meðan fríið er:) kveðja til ykkar allra, lovi you mamma amma