Við skelltum okkur í tívolíið í Crystal Palace í gær, Það er sennilega af svipaðri stærðargráðu og tívolíið í Smáralind, eitthvað fyrir alla.
Við fórum nokkrar ferðir, byrjuðum á að fara í risastórt tæki sem var ekki með neina lágmarks hæð svo að Vignir fékk að koma með í það. Þegar við vorum komin af stað kom í ljós að þetta var algjört hryllingstæki og ég veit ekki hvort okkar, ég eða Vignir, var hræddara meðan á þessu stóð og okkur var sveiflað aftur á bak og áfram á hvolfi yfir hálfa London. Allavega eftir þessa bunu þá kom ekki til mála hjá okkur tveimur að fara í fleiri svona stór tæki, meðalstóru tækin voru alveg látin duga meðan Þórir og Borgar héldu áfram í risatækjunum.
En þetta var samt voðalega gaman, verst að ég er með verki í baki, öxlum og handleggjum í dag, sennilega eftir að ríghalda mér stíf af hræðslu í hryllingstækinu.
Thursday, 10 April 2008
Tívolí
at
12:44
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment