Friday, 23 May 2008

Áfram Ísland!

Við horfðum að sjálfsögðu á Eurovision í gær og urðum afskaplega kát þegar kom í ljós að Ísland komst áfram. Við álítum okkur nú eiga dálítinn þátt í því, þar sem við tókum þátt í símakosningunni og kusum úr öllum símum á heimilinu, það voru þó nokkur atkvæði sem Ísland fékk þar!

3 comments:

Anonymous said...

Takk fyrir bresku stigin 6 Fanney, Þórir, Atli, Unnur, Borgar og Vignir ;). Verst að þau dugðu ekki til sigurs.

Helena og Jonni

Anonymous said...

Við fáum ekkert stig frá Bretum á næsta ári, það er alveg ljóst!
Kv.M.

stina said...

Gott hjá ykkur;)Það var engin bílaumferð meðan þátturinn var sendur út, og þvílíkur léttir, laus við allan umferðaneðinn.
En mér fannst krakkarnir standa sig vel, fyrir Íslands hönd
Kv.M-T-AS