Thursday, 22 May 2008

Glataður/græddur dagur...

...það fer eftir því hvernig á það er litið.
Ég þurfti að taka eitt próf og hélt að það ætti að vera í dag, fimmtudag. Á mánudagskvöldið komst ég hins vegar að því, mér til mikillar skelfingar, að prófið var á miðvikudegi en ekki fimmtudegi. Þetta þýddi að ég hafði einum degi minna til að læra fyrir það og kallaði á mikinn maraþonlestur.
Í gær fór ég svo í prófið og í staðinn á ég frí í dag. Er maður ekki alltaf að græða?

3 comments:

Anonymous said...

Til hamingju með að vera búin í prófinu!!!
Njóttu dagsins í dag, ég vona að það sé sól og gott veður og að þú getur farið í bæjarrölt í sumarfötum og stoppað á kaffihúsum og fengið þér hvítvín og haft það gaman.

Helena

Anonymous said...

Heppin að komast að því á mán en ekki fim að prófið er á mið.

stina said...

maxellaxTil lukku, það er alltaf gott að græða og þá ekki síður að vera búin í prófinu, þér hefur örugglega gengið vel.

Kv. Stína