Friday, 2 May 2008

Íkornar

Í garðinum við skólann minn býr íkornapar, og þau eru feitustu og gæfustu íkornar sem ég hef séð. Þau sníkja endalaust af fólki sem gengur fram hjá þeim og þegar maður sest á bekkina í garðinum til að borða nestið sitt þá koma þau iðulega til manns og sníkja. Annað þeirra hefur meira að segja skriðið upp á lærið á mér til að sníkja mat. Þetta gerir þau að sjálfsögðu alveg ómótstæðileg og er til þess að lang flestir gefa þeim að borða og þess vegna eru þau orðin alveg spikfeit.
Við Vignir fórum í skólann minn í gær að skila verkefni og hittum annan íkornann (karlinn held ég). Við tókum með okkur hnetur sem við gáfum honum og hann tók sko hraustlega til matar síns!
Myndir

5 comments:

Anonymous said...

Hann er bara sætur! Taktu þau með heim næsta haust.

stina said...

En hvað hann er sætur, gaman þegar þeir eru svona spakir:)


Kv. mamma, tengdó, amma Stína

Anonymous said...

Geturðu komið á stefnumóti í júní?

Saknaðarkveðja til allra, mor.

stina said...

MaxellaxHæ er ekkert markvert að ske hjá ykkur nuna?:-)

saknaðarkveðja til ykkar allra, ýkir vænt um ykkur öll. kv.

Anonymous said...

Eru þetta Chip and Dale? Vantar bara Plúto