Sunday, 15 June 2008

Hæ hó jibbý jei...

Við fórum á 17. júní hátíð hjá Íslendingafélaginu í gær. Fyrst var hátíðardagskrá í St. Lukes kirkjunni í Chelsea og á eftir voru seldar grillaðar SS pylsur og íslenskt sælgæti.
Á 17. júní sjálfan verður eitthvað lítið um hátíðarhöld hjá okkur, bara venjulegur dagur, en ætli við gerum nú ekki gott við okkur í mat og drykk um kvöldið. Við erum vön að grilla á 17. júní og höldum örugglega í þá hefð!

3 comments:

Anonymous said...

Búin að fara á 17 júní hátíð? Er ekki örugglega bara 1klst í tímamismun
Kv. Jói

stina said...

Hæ, en gaman:) Ummm ég vildi að ég gæti fengið bita hjá ykkur af grillmatnum sendan:-!
Látið ykkur líða vel.

Kv. mamma.

Sigrún said...

Bara að segja hæ og kvarta pínulítið: Er ekki orðið svolítið langt síðan að þú bloggaðir síðast