Það sem kemur hér á eftir er heilagur sannleikur, hversu ótrúlegt sem það virðist!
Eva og Jóhanna vinkonur Unnar voru hjá okkur í síðustu viku og einn daginn keyptu Unnur og Jóhanna sér saman Cosmopolitan blað. Blaðinu fylgdi skafmiði og lukkgrísirnir unnu viku siglingu um grísku eyjarnar fyrir tvo! Þegar Jóhanna var farin aftur til Íslands keypti hún sér annað Cosmopolitan blað sem fylgdi eins skafmiði og vann aðra viku siglingu um grísku eyjarnar fyrir tvo!
Hverjum finnst það þær eigi að bjóða mæðrum sínum með sér í siglinguna?
Wednesday, 11 June 2008
Lukkugrísir
at
14:18
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
8 comments:
Vá - hvernig er þetta hægt???? Að sjálfsögðu bjóða þær mæðrum sínum með sér!!!!!
Vala
Þetta er ótrúlegt!
Ég legg til að dætur mínar kaupi þetta blað.
Kv. M.
P.S. Mér finnst að þær eigi að bjóða mæðrum sínum með í siglinguna. M.
Þetta er eiginlega eins og í lygasögu. Auðvitað bjóða þær mæðrum sínum út:) Og hvernig væri að þú splæstir á þig einu blaði, og sjá hvort þú ynnir ekki ferð fyrir eldri mæður;)
Til hamingju stelpur mínar, þið eruð svo sannarlega heppnar:)
tengdó, amma
Alveg hreint ótrúlegt!
Til hamingju með vinninginn og góða skemmtun í siglingunni :).
Nema hvað? Er það einhver spurning?? Góða skemmtun bara :-)
Vá engin smá heppnin, hvernig væri að fara og kaupa fleiri blöð og bjóða gömlum vinkonum mæðranna sem kunna einu sinni að skemta sér á þessum siglingaslóðum:)
Til lukku,
bið að heilsa
Anna Björg
Post a Comment