Monday, 2 June 2008

Unglingar

Það er búið að vera mikið líf og fjör hjá okkur undanfarið, Róbert vinur Atla var í heimsókn í síðustu viku og Eva og Jóhanna vinkonur Unnar eru búnar að vera hér síðan á miðvikudag.
Á tímabili voru 6 unglingar á heimilinu og mikið fjör - útlitið á unglingaherbegjunum minnir töluvert á myndirnar sem við sjáum af húsnæði eftir jarðskjálftann á Suðurlandi.
Á föstudaginn fórum við öll í tívolí sem heitir Thorpe Park , tókum lest þangað og vorum allan daginn. Það var mjög skemmtilegt, fullt af stórum tækjum, en alveg svakalegar biðraðir í þau. Það var misjafnt hvaða tæki fólk þorði að fara í, sumir létu sér minni tækin alveg nægja!

1 comment:

stina said...

Hæ! það er örugglega búið að vera mikið fjör hjá ykkur:) Það verða örugglega mikil viðbrigði, þegar unglingarinnir verða bara 3 aftur.

En var ekki bara gaman:)

Kv.